Aðalvalmynd

Auglýsing

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

ný vika

21. janúar 2008 klukkan 15:21
Þá er helgin loksins liðin og ný vika tekur við.

í dag fæ ég frí frá vinnunni og nýti daginn í ofsalestur og grímubúningaleit. Við Thelma erum að spá í að vera Shrek og Fiona á föstudaginn og ætlum við að fara að skoða búningana í kvöld, það verður án efa fáránlega skemmtilegt.
Við erum einnig komnar með nokkrar tillögur:

- hitwoman
- læknar
- vera í dimmiteringabúningunum
- hermenn

... það er svo margt í stöðunni;) en við finnum út úr því í vinnunni því við erum að vinna þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag og eins og staðan er þessa dagana verður ekkert að gera þannig að við höfum nægan tíma til að spökulera í þessu.

Ég er rosalega ánægð með tímana í vinnunni þennan mánuðinn, komin með 116,5 tíma nú þegar og á  19 tíma eftir! úff hvað það verður gaman að fá útborgað!
ég ætla að versla og versla og versla! - eða ekki- haha

Í vikunni ætla ég að reyna að vera dugleg að fara út að labba með Tátu þar sem hún er að springa þessi litla elska og við höfum bara gott af því báðar tvær að labba voginn á hverjum degi!

Eftir að ég byrjaði að blogga, þessar tvær heilu færslur, hef ég mikið verið að leiða hugann að því hvað það er sem maður ætti að vera að skrifa um. Nú er ég ekki  retta manneksjan í að skrifa um hvað ég geri í lífinu þar sem það tekur bara hálfa línu eða svo - lesa, djamma, vinna -  og ekki eru þetta merkis viðburðir en kannski ég fari bara að leita á vit ævintýranna og skrifa smásögur?

Until next time....
...kolla kærleikbjörn;)

2008

20. janúar 2008 klukkan 11:13
Jæja þá er nýtt ár gengið í garð.

Ég ákvað að nota þessa síðu sem bloggsíðu í stað þess að láta hana vera hérna alveg ónotaða.

Eftir ferðina miklu í sumar  byrjaði ég í lögfræðinni í HÍ og skemmti mér konunglega. Þar kynntist ég mikið af skemmtilegu fólki og hef verið dugleg að stunda skemmtistaði borgarinnar ásamt Katrínu og erum við eins og hinar örgustu skemmtanalöggur í 101!

- "Við erum heimsfrægar í miðbænum" -

Ég var ekkert að vinna í bíóinu í vetur, eða næstum því ekkert, en eftir mikinn söknuð og angist, snéri ég aftur til vinnu í janúar og hef nú tekið við föstu vöktunum mínum aftur - ógeðið er komið - það þarf ekki langan tíma!

En nú þarf maður að fara að taka sig á í lestrinum og hvíla skemmtunina aðeins, en ekki alveg strax!
Framundan bíður mín rosaleg helgi:

 - lasertag
-  matarboð/ party heima hjá mér
-  innflutningsparty
-  og vitaskuld - 101-

... eftir það byrjar pásan! ( er verið að missa sig í kaldhæðninniUllandi)

En þá er þessi helgi að líða undir lok og tæpir 20 klukkutímar í vinnu búnir (Vúhú) en dagurinn í dag er rétt að byrja og bíður mín ekkert nema 11 klukkusturndir í vinnu, Thelma og bækurnar!

Kveðja,

 Kolbrún Ýr



Amsterdam og svo heim

27. júlí 2007 klukkan 16:25
Þegar við breytum flugmiðunum þá fengum við bara helgaferð til amsterdam í staðinn. Málið er bara að skoða smá amsterdam og svo bara sjá hvað við getum gert þarna. En eftir smá stund þá förum við og tékkum okkur inn og svo er það bara u.þ.b. 10 tíma flug ,jibbí!!!!!!!! En ætli að við gerum bara ekki eins og Elvis kongurinn og smökkum á nokkrum svefnpillum og vonandi vöknum við lendingu.

Við leggjum svo af stað kl.22:30 frá Hollandi og lendum upp úr 23:00

Ljúfa lífið er að taka enda en við hlökkum mikið til að koma heim í kuldan!

Þangað til að við sjáum ykkur

tjá amigos

Það fer að koma að þessu

20. júlí 2007 klukkan 16:06

Þá er bara vika þanngað til að við leggjum af stað og 9 dagar í það að við lendum á klakanum. En núna er kominn helgi, (það er helgi hjá okkur alla daga) en í fyrramálið  förum við í buggy ferð um um eyjuna og skoðum ýmislegt á eyjunni og syndum ogsnorklum.  Síðan eftir hádegi  þá förum við í bátsferð með vinafólki Krissu og Rene um The Spanish Waters sem er  mjög fallegur fjörður hérna. Við munum taka myndir af þessum viðburðum og skella þeim á netið. 

Planið fyrir næstu viku er að liggja á ströndinni og gera sem minnst og undirbúa sig fyrir heimför. Nenni ekki að vera skrifa eitthvað meira, við sjáum ykkur bráðum.

HæHæ

17. júlí 2007 klukkan 15:28
Netið er dálítið leiðinlegt hérna, komust ekki alltaf inn á það. Höfum ekki mikinn tíma til að setja inn myndir en reynum að gera eitthvað í því. Kolla er alltaf jafn heppin hún er komin með útbrot á bakið útaf sólinni og þarf að passa á sér bakið þessa vikuna. Þannig að það setur smá strik í reikninginn hjá henni í tani en ég held ótrauður áfram að verað svartur. Bara tíu dagar þanngað til að við leggjum af stað heim og peningarnir okkar eru ekki eins miklir og þegar við komum hingað en við björgum okkur eða vísa!! Erum ekki að passa þessa vikuna sem þýðir að við getum farið á fínni strendur og haft það meira kósý.

Erum farin að slappa af.......... síja

Bon tardi

12. júlí 2007 klukkan 14:57
Við komum heim 29 júlí á klakan um kvöldið við bíðum spennt  eftir því, vildum bara láta ykkur vita af þessu þannig að þið getið undirbúið ykkur fyrir rigningu og leiðinda veður. Síðustu dagar hafa farið bara í afslöppun en í gær þá fórum við í Sea aquarium þar sem við sáum höfrunga leika listir sínar, risa skjaldbökur synda um og einnig hákarla. Það voru flamingo þarna líka og ég náði myndum af þeim, hefði ekki þurft að lappa í drullu til að ná myndum af þeim í bonaire en svona er lífið. Planið í dag var að vakna snemma og fara á ströndinna en svo er einn af þeim fjórum rigningadögum ársins núna, okkur leið eins og heima. Andskoti gott að vera kominn heim svona allt í einu en við erum að bíða þanngað til að það léttir til og þá byrjar okkar vinna!! það er að liggja á ströndinni og láta nýju túristana liða betur með að vera hvít. Fáum ekki borgað fyrir þetta en hvað gerir maður ekki fyrir fólkið.
Er ekki ánægðu hérna með það að vera hliðan á landinu sem er að halda Copa America og ég hef ekki séð einn leik, hefði alveg eins geta verið heima hjá omma og séð alla leikina. En mun leggja mig allan fram til að sjá úrslitaleikinn sem er 15 júlí.
Við erum búin að venjast hitan hérna alveg þokkalega, þannig að það verður spennandi að koma heim og sjá hversu kalt manni verður. Kolla mun örugglega deyja, henni var alltaf kalt áður en við fórum út en ég er með íslenskan feld á mér og vonandi mun hann virka vel heima fyrir.


En þetta er komið nóg, erum farin að reyna sjá hvort sólin sé að láta sjá sig.

Frí í fríinu

05. júlí 2007 klukkan 14:45

Þá er að segja ykkur frá ferðinni til Bonaire, eyjan sem er hliðan á Curacao. Þetta er miklu fallegri eyja og allt í stað þægilegri, en ekki eins mikið af djammlífi þarna en það er þó eitthvað.  Þegar við vorum að fara frá Curacao þá tók það að lengri tíma að fara í gegnum öryggisverðina og öll hliðin heldur en flugið sjálft. Ég var búinn að nefna að hér eru byggingar í allskonar litum og þó sérstaklaga í skærum litum, flugvöllurinn er bleikur að lit eins og flamingo fuglanir. Vissu þið að þar sem fersk vatn og sjór renna saman, myndast eitthvað sem flamingo borða og þess vegna verða þeir bleikir!!!

En á föstudaginn þá komum við í Bonaire og við leigðum okkur scooter sem var mjög gaman. Við gerðum ekkert merkilegt nema að við fórum á Plaza hótel sem hafði sundlaug. Vá hvað við höfum saknað að geta stungið okkur í kaf og ekki finna slatbragðið og svíða í augun. En kolla varð eitthvað slöpp um kvöldið, þannig að við láum bara upp í rúmi og horfðum á sjónvarpið. Við brunnum smá eftir að hafa verið á scooter og ekki borið á okkur sólavörn og við höfðum ekki aloavera til að bera á okkur, þannig að við urðum dálítið aum daginn eftir. Það besta við þessa ferð var að við höfðum loftkælingu í hússinu sem við gistum í.

Á laugardaginn þá komu Krissa og Rene, en við fórum einn hring meðfram strandlengjunni og sáum hvar og hvernig þeir búa til salt hér. Þeir hleypa sjó í ákveðinn svæði og seta í sjóinn kalk og svo þorna vatnið upp og eftir verður saltið sem er svo skrapað saman og flutt í hrúgur sem þið munið sjá á myndunum.  En um kvöldið þá fórum við á smá djútt og hvað gerir maður eftir það. Maður fær sér að borða, við fengum okkur carco sem er krabbinn inn í þessum stóru kuðungum. Hann var ekkert lostætti, heldur minnti frekar á of grillað svínakjöt. En kolla fékk sér kjúkling í brauði sem var svo miklu betra, var bara að fatta það að ég ætlaði að fá mér líka svona kjúlla seinna, dem. Svo var farið að sofa í loftkælingunniJ

Sunnudagurinn fór að skoða það sem var eftir af eyjunni, hún er rosalega falleg. Keyrðum fram hjá köfunarstað sem heitir 1000 steps, langar frekar mikð að kafa þar. Við gátum ekki fengið betri leiðsögumann til að segja okkur frá þessari eyju, Krissa var leiðsögumaður fyrir túrista og fór með okkur hringinn sem þeir fara. Margt mjög áhugavert sem við lærðum, en við fórum ekki íþjóð garðinn sem mér langar virkilega að fara, það er svona verndað svæði með alskonar skemmtilegu dóti til að skoða. En förum bara þanngað næst þegar við komum hingað til að kafa. Um kvöldið fengum við okkur að borða, þar sem kokkar úr kokkaskólanum voru að gera matinn sem þeir elduðu í Caribbean cook-off þar sem þeir nældu sér í silfrið. Fórum svo aftur á djúttið, get ekki alveg kallað þetta djamm. Þarf maður ekki að ná ákveðnu ölvunarstigi til að fara á djammið?? Fórum svo að sofa með loftkælinguna í botni.

Veit að þetta er löng færsla en margt að segja frá

Á mánudaginn þá skoðuðum við Asna búgarðinn, það voru útum allt asnar en núna er þeim safnað saman á eitt ákveðið svæði. Þegar við vorum að keyra í gegnum staðinn þá leituðu þeir frekar mikð til kollu, veit ekki alveg af hverju en það gæti verið út af mörgum ástæðum. Förum ekkert nánar út í það!  Eftir það þá gerði ég það sem mér hefur alltaf langað að gera, fór að kafa. Vá hvað það er gaman, ætla að reyna taka hér próf og svo tekur maður bara þurrbúningpróf heima. Maður minnti bara á sel í sjónum og sjávarlífið er svo fallegt þarna, fiskarnir í öllum regnboganslitum. Kennarinn var ekkert að segja manni að korall gæti meitt mann. Fékk þvílík sár á hnéin eftir að hafa lagt þau ofan á koral og til að bæta ofan á þetta þá rakst örsmár jelly fiskur utan í mig, en salatdressing reddaði þessu.Eitt það furðulegasta sem gerðist í þessari ferð var að kolla liggur í sakleysi sínu í sólbaði og þá stekkur risa stór equana á hausin á henni og stuttu seinna safnast fleiri equanas saman á dótinu hennar og bekknum þannig að hún þarf að flýja sinn stað. Leigðum aftur scooter til að geta komist á milli staða, Krissa og þau fóru heim en við vorum einn dag í viðbót.

Á þriðjudaginn þá gerðum við ekkert nema að liggja á sundlaugabakkanum hjá Plaza hótelinu og fengum okkur að borða á geggjuðum stað. Ég og kolla fengum okkur bestu pizzur sem við höfum smakkað og tölum ekki um eftirréttin, kolla fékk sér súkkulaðikökku og ég fékk djúpsteiktar oreo kökkur og stóra kúlu af vaniliís. Gætum borðað þarna endalaust en þá myndum við væntanlega geta rúllað okkur um allt.

Svo meigið þið þakka okkur fyrir góða veðrið sem er heima, ákvæðum að það væri of heitt hérna þannig að við sendu nokkrar gráður heim. En rigningin kemur um leið og við komum heim.

En hérna sett ég punktinn yfir i-ið, bless

  

TORRES

04. júlí 2007 klukkan 15:36

Fernado Torres er kominn til Liverpool!!!!!!!!!!

YES eins gott að hann standi sig en við skrifum og setum inn myndir kannski í dag eða á morgun

eru frekar löt í dag.


kv. Við

Bonaire bonaire

29. júní 2007 klukkan 01:31

Það verður fátt um færslur næstu daga, við erum að fara til Bonaire. Það er eyjan sem er hægrameginn við Curacao. Planið er að leigja scooter á morgun (föstudag), liggja á fögrum ströndum og skoða allt á þessari eyju. Það ætti ekki að taka langan tíma vegna stærðar eyjarinar. Verðum fram á þriðjudag og þá skrifum við eitthvað af viti. 



 Kv. hálf brúna fólkið

Það sem er að gerast

25. júní 2007 klukkan 14:40

Þessi helgi búin og önnur vika framundan og barnapössun mun vera allsráðandi þessa vikuna. Yolanda sem þrífur hérna og passar krakkana þegar þau eru búin í skólanum er farin í mánaðar frí, það þýðir ekki gott fyrir okkur hérna á heimilinu. Við þurfum núna að þrífa eftir okkur!!! Og einnig passa krakkana þessa vikuna. En þetta verður ekkert mál, þar sem við ætlum að fara synda með höfrungum og skoða strútabýli.

Í gær var farið í hjólaferð með lögreglunni sem var ágæt en þegar þú ert búinn að hjóla í u.þ.b 3 tíma og búinn með vatnið, óþægilegur hnakkur = aumur rass, hjólahraði að meðaltali 9 km og það er 33 stiga hiti og það springur á dekkinu þínu rétt áður en komið er á leiðarenda. Þá getur maður orðið smá pirraður og þreyttur, en við hjóluðum 20 km sem er ágætt. Kolla á sínu dömuhjóli var alveg að meika það á fullu spani á köflum. Eftir hjólaferðina þá drífðum við okkur heim í sturtu og beint á sýningu sem Natani var að dansa í. Var alveg með einbeitinguna í lagi fram af atriðinu hennar en eftir það þá hefið ég getað sofnað. Það eins sem stoppaði mig að gera það var kuldinn þarna inni, það var örugglega mínus 3-5°. Nokkur break atriði voru á dagskrá sem voru nokkuð flott en ég held að við strákarnir höfum alveg tekið jafnflott spor á börum Reykjavíkur.

Kolla er að byrja á námskeiði í þessari viku, þar sem hún lærir að búa til skartgripi, héðan í frá fá allir skratgripi frá henni í gjöf. Verður mjög gaman að sjá hvernig tekst til hjá henni, efast ekki um annað en að þetta verða einhver meistaraverk.

Það eru sumir sem eru ekki alveg að finna hvar myndirnar okkar eru en linkurinn er undir tenglar og þar í myndir. Þá ferðu inn á flikr, við munum setja inn myndir í dag og ég reyni að setja inn myndbönd af Natani dansa.

Draumar mínir eru kannski að rætast, kolla er að sækja um að fara í lögfræði í Hí, var of sein að sækja um í HR. Það verður einhver að þéna peninga á heimilinu!!

Þessar mosqito er orðnar annsi kræfar, þær bíta í rassin á manni. Skil ekki hvenig þær komast inn undir nærbuxunar en það er víst önnur ráðgáta sem þarf að athuga.

Verðum að fara sólin er að kallaJ